Allar tilfinningar eru í lagi. Hvert viltu fara?
Auðveldasta verkefnið, með sýnidæmi
Veldu stig
Að þekkja og nefna tilfinningar, setja sig í spor annarra, velja vingjarnleg viðbrögð, setja mörk og róa sig.
Leikskóli og 1.–4. bekkur.
Engin. Andlitalestur og Líðan mín virka án lestrar; í sögunum og Vinaleið les fullorðinn textann.
Á spjaldtölvu: Byrjið á Líðan minni sem morgunstund. Farið svo í Andlitalestur stig 1 og hermið eftir andlitunum saman. Ræðið að svipur getur þýtt fleira en eitt (t.d. tár af gleði) og að best er að spyrja: „Hvernig líður þér?“
Andlitalestur stig 1. Fullorðinn les sögurnar og spyr: „Hvernig myndi þér líða?“
Stig 3. Barnið segir frá eigin reynslu: „Hvenær leið þér svona?“ og „Hvað hjálpar þér?“
Fyrir hverja stöð: markmið, aldur, kynning, ein setning til að segja við barnið, aðstoð og tími (ein umferð). „Með fullorðnum“ merkir að fullorðinn þarf að segja eða lesa orðin, t.d. í hljóðkerfisvitund og lestri. Hnapparnir opna stöðina beint á réttu stigi; stillingar kennara (t.d. stafaval) haldast.
Hér sést hvaða hæfniviðmið hver stöð tengist, orðrétt úr aðalnámskrá (grunnskóli: „Við lok 4. bekkjar getur nemandi:“), og hvernig það birtist í leiknum.
Beint Leikurinn þjálfar þetta beint. Að hluta Leikurinn þjálfar hluta af viðmiðinu. Undirstaða Leikurinn byggir grunn sem viðmiðið hvílir á.
áttað sig á og lýst ýmsum tilfinningum, svo sem gleði, tilhlökkun, sorg og reiði,Sjálfsmynd – Tilfinningar
Í leiknum: Barnið þekkir og nefnir gleði, tilhlökkun, sorg, reiði, hræðslu og undrun.
sett sig í spor jafnaldra og fjölskyldumeðlima,Vinnulag samfélagsgreina – Setja sig í spor annarra
Í leiknum: Barnið metur hvernig öðrum líður í stuttum sögum.
sýnt sjálfum sér og öðrum virðingu og sagt frá því hvernig það er hægt,Sjálfsmynd – Virðing
Í leiknum: Barnið velur vingjarnleg viðbrögð, setur mörk og virðir mörk annarra.
sýnt þekkingu á reglum í samskiptum og útskýrt tilgang þeirra,Borgaravitund – Reglur
Í leiknum: Að skiptast á, deila, biðjast fyrirgefningar og spyrja „má ég vera með?“
áttað sig á mikilvægi jákvæðra viðhorfa fyrir sjálfan sig,Sjálfsmynd – Hugarfar
Í leiknum: Barnið segir frá eigin líðan og prófar leiðir til að róa sig.
tilfinningalegt jafnvægi,Heilbrigði og vellíðan
Í leiknum: Öndun, telja hægt og tala við fullorðinn.
efla jákvæð samskipti og þau fái tækifæri til að leysa mál sem upp koma í leik á eigin forsendum.Sjálfbærni og vísindi
Í leiknum: Að leysa mál í leik á jákvæðan hátt.
Andlitin eru teiknuð sérstaklega og líta eins út í öllum tækjum. Gleði, tilhlökkun, sorg og reiði eru nefndar beint í aðalnámskrá.
Þessi markmið eru okkar eigin. Þau eru ekki tekin orðrétt úr aðalnámskrá en styðja við viðmiðin hér fyrir neðan.
áttað sig á og lýst ýmsum tilfinningum, svo sem gleði, tilhlökkun, sorg og reiði,Sjálfsmynd – Tilfinningar
sett sig í spor jafnaldra og fjölskyldumeðlima,Vinnulag samfélagsgreina – Setja sig í spor annarra
sýnt sjálfum sér og öðrum virðingu og sagt frá því hvernig það er hægt,Sjálfsmynd – Virðing
sýnt þekkingu á reglum í samskiptum og útskýrt tilgang þeirra,Borgaravitund – Reglur
áttað sig á mikilvægi jákvæðra viðhorfa fyrir sjálfan sig,Sjálfsmynd – HugarfarAðalnámskrá grunnskóla – Samfélagsgreinar (adalnamskra.is) ↗
Leikskólanámskráin hefur ekki hæfniviðmið heldur lýsir námssviðum.
tilfinningalegt jafnvægi,Heilbrigði og vellíðan – úr listanum „Í leikskóla ber að stuðla að heilbrigði og vellíðan barna með því að leggja áherslu á;“
Í leik eflist hæfileiki barna til samskipta og málþroski þeirra eykst, þau tjá hugmyndir sínar, reynslu, tilfinningar og beita tungumáli á fjölbreyttan hátt.Læsi – samskipti
efla jákvæð samskipti og þau fái tækifæri til að leysa mál sem upp koma í leik á eigin forsendum.Sjálfbærni og vísindiAðalnámskrá leikskóla – 9. kafli (adalnamskra.is) ↗