Dragðu vísana og lærðu á heila og hálfa tímann.
Stig 1 með kynningu á vísunum
Byrjaðu á „Sýndu mér“ og horfðu á vísana hreyfast.
Stilltu klukkuna á:
Hvað er klukkan?
Skoðaðu vísana – og himininn!
Stig 1: stóra og litla vísinn og heila tíma. Stig 2: hálfa tíma („hálf fjögur“). Stig 3: sólarhringinn, 24 tíma klukku og tíma dagsins.
1.–4. bekkur; elstu börn í leikskóla geta byrjað á stigi 1.
Barnið þarf að þekkja tölurnar 1–12.
Á spjaldtölvu: Byrjið á „Sýndu mér“ og horfið saman á litla vísinn færast. Ýtið svo á „Stóri vísirinn“ og „Litli vísirinn“. Dragið vísana saman í „Leika mér“ áður en farið er í verkefnin.
Verið á stigi 1 og í „Leika mér“. Tengið við daginn: „Klukkan átta förum við í skólann.“ Í verkefnunum má reyna tvisvar. Gul stjarna þýðir að barnið leysti verkefnið sjálft; ljósblá stjarna að það fékk hjálp (svarið var sýnt).
Stig 3. Spyrjið: „Hvað verður klukkan eftir einn tíma?“ eða „Hvað er klukkan á kvöldin þegar þú ferð að sofa?“
Fyrir hverja stöð: markmið, aldur, kynning, ein setning til að segja við barnið, aðstoð og tími (ein umferð). „Með fullorðnum“ merkir að fullorðinn þarf að segja eða lesa orðin, t.d. í hljóðkerfisvitund og lestri. Hnapparnir opna stöðina beint á réttu stigi; stillingar kennara (t.d. stafaval) haldast.
Hér sést hvaða hæfniviðmið hver stöð tengist, orðrétt úr aðalnámskrá (grunnskóli: „Við lok 4. bekkjar getur nemandi:“), og hvernig það birtist í leiknum.
Beint Leikurinn þjálfar þetta beint. Að hluta Leikurinn þjálfar hluta af viðmiðinu. Undirstaða Leikurinn byggir grunn sem viðmiðið hvílir á.
lesið og notað mismunandi framsetningu á tíma, notað skífu- og stafræna klukku og lesið tímatöflur,Rúmfræði og mælingar – Tími og klukkan
Í leiknum: Skífuklukka: heilir og hálfir tímar, í tölum og orðum.
lesið og notað mismunandi framsetningu á tíma, notað skífu- og stafræna klukku og lesið tímatöflur,Rúmfræði og mælingar – Tími og klukkan
Í leiknum: Stafræn klukka og sólarhringurinn (24 tímar). Tímatöflur eru ekki með.
Leikskólanámskráin nefnir ekki tíma eða klukku sérstaklega.
Aðalnámskrá grunnskóla, stærðfræði (25. kafli, 2024) – „Við lok 4. bekkjar getur nemandi:“
lesið og notað mismunandi framsetningu á tíma, notað skífu- og stafræna klukku og lesið tímatöflur,Rúmfræði og mælingar – Tími og klukkanAðalnámskrá grunnskóla – Stærðfræði ↗
Stjörnurnar safnast í sömu kistu og í öðrum leikjum Námskistunnar. Valið stig vistast í tækinu.